Scandia Housing Canada
shim    EnglishIcelandic shim
   
 
  SERVICESPROJECT GALLERYWHY CHOOSE USCUSTOMER REFERENCESTESTIMONIALSFAQ  
   
 



Scandia Housing Canada

Scandia Housing Íslandi býður upp á stál og timburhús af öllum stærðum og gerðum frá Kanadíska fyrirtækinu Scandia Housing. Má þar nefna einbýlishús, sumarbústaði, skála, skemmur og stærri hús.

Öldum saman hafa Kanadísk hús verið vinsæl á norðurhveli jarðar og menn hafa lengi vitað að timbur og stál er heilnæmur, endingargóður og náttúrulegur efniviður.

Húsbyggjendur nú á dögum kunna vel að meta hvernig timbrið andar - loftið er betra í slíku húsi - og það stuðlar að vellíðan íbúanna. Útlit Kanadísku húsanna er sérstaklega hlýlegt, auk þess er einangrunargildi með því besta sem gerist.

Allar byggingar eru aðlagaðar íslenskum aðstæðum!

Scandia Housing hefur í náinni samvinnu við Verkfræðinga og Arkitekta lagað öll húsin að íslenskum aðstæðum. Smiðir okkar hafa hlotið sérstaka starfsþjálfun í uppsetningu og frágangi á húsunum. Meðal þeirra húsa sem fást frá Scandia Housing er mikið úrval húsa á einni hæð eða hæð með risi.

Hægt er að gera breytingar á grunnteikningu húsanna og setja þau saman á ótal mismunandi vegu. Einnig fást útgáfur sem eru spegilmyndir grunngerðanna.

Og að sjálfsögðu smíðum við vönduð hús samkvæmt sérstökum óskum eða eftir teikningum viðskiptavina.

Töluverður sveigjanleiki

 

Húsin fást úr mismunandi efni að ósk kaupanda. Allur frágangur er fyrsta flokks, enda hvergi sparað í efni og gæðum. Hægt er að fá húsin á ýmsum byggingarstigum, ósamsett, fokheld, uppkomin með rafmagni í veggjum og eldhúsinnréttingum og að sjálfsögðu fullfrágengin með öllu sem til heyrir.

 

Scandia Housing á Íslandi

 

Húsin frá Scandia Housing Canada hafa verið seld á Íslandi frá 2002. Þegar hafa verið reist nokkur hús og er reynslan af þeim mjög góð.

 

Ef þú vilt skoða húsin nánar, fá myndabæklinga, teikningar eða ítarlegri upplýsingar um verð, hafðu þá samband við skrifstofuna í síma +1 613 614 2122 eða sendu tölvupóst til info@scandia-housing.com.

 

Einnig verður hægt að skoða myndir af mörgum húsum í myndagalleríinu.

 

 



Scandia Housing Canada